15.4.2009 | 07:25
sæll er sá maður, sem treystir þér
Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna.
Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.
Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!
Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig.
Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu.
Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun.
Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon.
Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð.
Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða!
Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.
Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik.
Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér.
Sálmur 84
Vinir, Drottinn Gefi ykkur góðan og glaðan dag í Jesú nafni, Amen
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Kær kveðja Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 15.4.2009 kl. 08:15
Takk fyrir þessi fallegu orð Sverrir minn. Þessi orð ylja manni svo sannarlega um hjartarætur. Þau gera það svo sannarlega. Hafðu góðan og ljúfan dag Sverrir minn og njóttu lífsins.
Með bestu kveðju.
Valgeir.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 09:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.